Safn: Skindinavia
Skindinavia er bandarískt snyrtivörumerki, stofnað árið 2005, sem sérhæfir sig í hágæða setting og finishing úðum sem halda förðun ferskri og fallegri allan daginn.
Með einkaleyfisvarðri kælingartækni hjálpa vörurnar til við að draga úr hita á yfirborði húðarinnar og fyrirbyggja bráðnun, fölun og glans – jafnvel í hita, raka eða undir sterkum ljósum. Léttur, örfínn úði hentar öllum húðgerðum og getur haldið farða á sínum stað í allt að 16 klukkustundir.
Skindinavia hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar í fegurðarheiminum og er talið eitt mest selda setting spray í heiminum. Vörurnar eru þróaðar í samstarfi við fagfólk í förðun og eru vegan, cruelty-free og paraben-free, auk þess að henta viðkvæmri húð.