Nounou Conditioner 1000ml
Original price was: kr.12.089.kr.9.750Current price is: kr.9.750.
ATH SÉRPÖNTUN afhendingartimi 1-5 dagar.
Nærandi og flækjulosandi næring sem gefur hárinu fyllingu og gerir það silkimjúkt.
Fyrir hár sem er þurrt eða skemmt eftir efnameðhöndlun.
Inniheldur virk efni úr Torre Guaceto Fiaschetto tómötum frá Slow Food Presidia býli. Ríkt af kolvetnum og próteinum, hefur sterka nærandi krafta og andoxunareiginleika fyrir tilstuðlan C-vítamíns. Virku efnin eru fengin úr aldinkjöti tómatanna og hafa einstaklega frískandi og nærandi eiginleika.
VIRK NÁTTÚRULEG EFNI:
Fiaschetto tómatar frá Guaceto
Þessi safaríki og sæti tómatur tilheyrir hefðum í matargerðarlist miðjarðarhafsins. Hann var lykilþáttur hjá öllum fjölskyldum, meira að segja í borgum, í að gera tómatsósu fyrir veturinn. Þrátt fyrir ríkulega sögu hans var Fiaschetto tómaturinn nær útdauður. Það var dýrt að rækta hann og uppskeran var minni en af öðrum tómata afbrigðum sem síðar voru þróaðir í sósugerð. Þökk sé yfirgripsmikilli leit í grænmetisgörðum svæðisins fundust Fiaschetto plöntur og hefur ræktun tómatarins nú verið endurvakin.
Framleiðandi: Calemone býlið undir stjórn hr. Mario di Latte
Frá Serranova di Carovigno, Brindisi